Vertu með á FIT&RUN EXPO 2027

19. ágú 2027 14:00-20:00
20. ágú 2027 14:00-20:00

Við hjálpum þér til að ná enn meiri árangri.

FIT&RUN er vettvangurinn þar sem nýsköpun, innblástur og tengslamyndun mætast á einum stað. Á sýningunni koma saman leiðandi vörumerki, framleiðendur, verslanir, dreifingaraðilar og þjálfarar til að kynna nýjustu vörur, þjónustu og lausnir fyrir hlaupa-, heilsu- og hreyfiunnendur.

Gestir geta kynnt sér allt frá háþróuðum hlaupaskóm og afkastamiklum íþróttafatnaði til næringar, tækni, heilsulausna og ævintýraíþrótta.

FIT&RUN Expo er öflugur vettvangur fyrir fyrirtæki sem vilja ná til virks og áhugasams markhóps, byggja upp vörumerki, auka sölu og mynda verðmæt tengsl innan greinarinnar.

Búist er við um 20.000 gestum á sýninguna, sem skapar einstakt tækifæri til að koma vörum og þjónustu á framfæri við stóran og markvissan hóp.

 

Af hverju að sýna á FIT&RUN?

Sem sýnandi færðu tækifæri til að:

  • Kynna nýjustu vörurnar, þjónustuna og tæknina fyrir virkum og áhugasömum markhópi

  • Mynda beinar og árangursríkar tengingar við kaupendur, samstarfsaðila og fagfólk

  • Kynnast hvað aðrir í greininni eru að gera, hvað þeir eru að leggja áherslu á, 

  • Auka sýnileika og styrkja ímynd vörumerkisins á einum stærsta viðburði ársins

  • Tengjast öðrum fyrirtækjum og öðrum leiðandi aðilum í greininni

  • Taka þátt í lifandi og hvetjandi umhverfi þar sem hreyfing, hollusta og nýsköpun fara saman

 

Sendu okkur fyrirspurn um laust gólfpláss á omar@vistaexpo.is   

Það er alltaf mikil stemning á FIT&RUN!

Náðu til rétta markhópsins á FIT&RUN

FIT&RUN er öflugur vettvangur fyrir fyrirtæki sem vilja byggja upp vörumerki sitt, kynna vörur og þjónustu og mynda tengsl við virkan og áhugasaman markhóp.

Eftir FIT&RUN 2026 var framkvæmd viðhorfskönnun meðal sýnenda. Niðurstöðurnar sýna sterka upplifun sýnenda og staðfesta að sýningin skapar raunverulegt virði fyrir fyrirtæki sem vilja ná til fólks með áhuga á heilsu, hreyfingu, hlaupum og lífsstíl.

Tölurnar tala sínu máli

83% náðu markmiðum sínum mjög eða frekar vel með þátttöku á FIT&RUN.

87% töldu gesti sýningarinnar passa mjög eða frekar vel við markhóp fyrirtækisins.

83% sögðu styrkingu vörumerkis vera einn helsta ávinning þátttökunnar.

74% nefndu tengslamyndun sem einn helsta ávinninginn.

48% fengu aukna kynningu á vörum með þátttökunni.

87% voru mjög ánægð eða ánægð með staðsetningu fyrirtækisins á sýningarsvæðinu.

74% segjast mjög eða frekar líkleg til að taka aftur þátt árið 2027.